Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
112
-
Um 160 nemendur eru í framhaldsskólanum á Húsavík og þar starfa 19 manns.
Nemendafjöldi Laugaskóla er um 120.
-
Aðsókn að Framhaldsskólanum á Laugum hefur haldið sér, þótt unglingar úr
nágrannabyggðum fari gjarnan til Akureyrar, t.d. allt að 100% úr Mývatnssveit. Margir
nemendur koma af landsbyggðasvæðum af NA-horninu. Þarna er góð almenn braut,
íþróttabraut og svo er fjarnám og stuðningsnám fyrir þá sem eiga við námsörðugleika að etja.
Kerfið byggir meira á símati og vinnustofum, fremur en fyrirlestrum og prófum.
Menning
Í þjónustukönnuninni kom fram að menningarlíf er þó nokkuð öflugra á Laugum (eða í Reykjadal) en í
Reykjahlíð (Mývatnssveit). Þar er t.d. leikfélag og fleiri kórar en kirkjukór og meira að segja
kvikmyndasýningar. Eftirfarandi atriði voru m.a. rædd á fundum okkar:
-
Menningarmiðstöð Þingeyinga er hattur yfir safnastarfi.
-
Í Þingeyjarsveit eru tveir stórir kórar, Sálubót og karlakórinn Hreimur (meðlimir koma víða
að), kirkjukórar og leiklist í Reykjadal. Svo er Hið þingeyska fornleifafélag og fornleifaskóli
barnanna. Félagslíf aldraðra er öflugt.
-
Í Skútustaðahreppi er öflugt íþróttastarf, fótbolti, skíði og frjálsar íþróttir. Íþrótta- og
ungmennafélag er sameinað. Skíðasvæði er í Kröflu. Starfandi er björgunarsveit, skákklúbbur,
kórastarf, bæði innan sveitar og á stærra svæði.
Sameining, samstarf
Sveitarfélögum hefur fækkað á svæðinu á undanförnum árum vegna sameiningar. Þingeyjarsveit nær
einnig yfir stórt landsvæði og þar sameinuðust fimm sveitarfélög, síðast Aðaldælahreppur 2006.
Skútustaðahreppur stendur þó sér enn sem komið er. Talsvert samstarf sveitarfélaga er í sýslunni, t.d.
varðandi skólamál og félagsþjónustu, málefni fatlaðra, barnaverndarmál, byggingar- og skipulagsmál
og atvinnuþróunarfélag. Eftirfarandi atriði voru rædd á fundunum:
-
Þingeyjarsveit er í margvíslegu samstarfi á svæðinu, um sorpsamlag, slökkvilið ásamt
Skútustaðahreppi, dvalarheimili aldraðra með sveitarfélögum vestan til og á Húsavík. Börn úr
Reykjahverfi
í Norðurþingi
sækja skóla á Hafralæk.
Samstarf
er
gegnum
menningarmiðstöðina, atvinnuþróunarfélagið og ýmsar nefndir eins og umhverfismál o.fl.
-
Í Þingeyjarsveit hugsa íbúar ennþá í byggðarlögum. Sameining er ferli sem tekur langan tíma.
Þjónustan þarf að vera eins alls staðar í sveitarfélaginu.
-
Mývetningar hafa fellt sameiningu með yfirgnæfandi meirihluta. Kosningaþátttaka er léleg,
fólk nennir ekki að kjósa aftur og aftur um það sama.
-
Menn borga sama hlutfallið í dýrustu póstana eins og skólamál og sameining breytir engu.
Fólk vill vita hvenær er nóg , hve mörg sveitarfélög ríkisvaldið vill fá. Það væri hægt að
vinna út frá því ef ríkisvaldið ákvæði fjöldann sem ætti að vera.
Stoðkerfi, byggðastefna
Ábendingar til ríkisvaldsins:
Niðurskurður hins opinbera og uppbygging við Bakka var rædd á þessu svæði, ekki síður en á
norðursvæðinu. Eftirfarandi atriði voru rædd á fundunum:
-
Það skortir skilning hjá hinu opinbera, t.d. þegar verið var að skera niður þjónustu. Það sýnir
sig m.a. í því að menn skilja ekki vegalengdir. Þetta skilningsleysi fer illa í fólk. Fólk verður
neikvætt og fer að tala sig niður. Menn upplifa sig annars flokks.
-
Vegna niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu verður erfitt að sinna Mývatnssveit á sumrin þegar
ferðamannastraumur er mestur.
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
113
-
Í Skútustaðahreppi vantar fleiri atvinnutækifæri á heilsársgrunni. Það vantar líka heilsárs
kvennastörf. Konur vinna meira í ferðaþjónustu að sumrinu en karlar.
Tækifæri til eflingar
Á fundunum komu fram eftirtaldar hugmyndir:
Í Þingeyjarsveit verður atvinnusköpun í tengslum við virkjun á Þeistareykjum stóra tækifærið.
Mörg tækifæri eru í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit. Nóg af gistinóttum bara með þá
ferðamenn sem ekki fá gistingu í Mývatnssveit, allt fullt frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.
Það mætti auka framboð á afþreyingu, hún er lítil nema í Vaglaskógi og við veiðina.
Óvíst er hvað Landsvirkjun gerir við húsnæði Grænna lausna í Mývatnssveit. Þau nýtast
kannski í sambandi við virkjun í Bjarnarflagi. Þar er allt tilbúið til virkjunar og rafmagn færi
beint inn á netið.
Heilsutengd ferðaþjónusta gæti verið tækifæri og hefur verið unnið að því af og til. Áherslan
ætti að vera á vellíðan. Vitað er um hópa sem koma tengt slíku, t.d. jógahópar.
Ýmis önnur verkefni tengd ferðaþjónustu eru möguleg, t.d. geotúrismi (ferðaþjónusta sem
byggir á jarðfræði). Það mætti markaðssetja fossaferðir, fossar eru margir á svæðinu.
Jólasveinarnir í Dimmuborgum og matur því tengdur gæti verið tækifæri til vaxtar.
Það eru nokkur opinber störf til staðar í Mývatnssveit, t.d. starfa landverðir að sumrinu. Svo
er
rannsóknarmiðstöð
við
vatnið.
Hægt
væri
að
hýsa
saman
starfsemi
Rannsóknamiðstöðvarinnar við Mývatn, Umhverfisstofnunar (landvörslu) og Þekkingarnets
Þingeyinga. Húsið á Skútustöðum gæti þó ekki hýst þetta og í raun ekki kjörið fyrir þá
starfsemi sem þar er.