Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra
Fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra þriðjudaginn 17.3. 2016 að Sæmundargötu 1, Sauðárkróki kl: 12. Mættir eru undirritaðir auk Sigurjóns Þórðarsonar framkvæmdastjóra og Steinunn Hjartardóttur heilbrigðisfulltrúa og Sigríðar Hjaltadóttur heilbrigðisfulltrúa.
___________________________________________________________________________
Dagsskrá:
-
Rekstrarniðurstaða 2015
-
Kynning á verkefni sem unnið var með Heilbrigðiseftirlitinu á Norðurlandi eystra
Hvað verður um útrunnin matvæli?
-
Samantekt á upplýsingum um stöðu fráveitumála á Norðurlandi vestra.
-
Inniloft á leikskólum og víðar.
-
Brennsluofnar við sláturhús
-
Starfsleyfi.
-
Önnur mál.
-
Starfsmannamál
-
Svör Olíufélagana v/ mengunarvarna.
-
Afgreiðslur:
-
Kynnt bráðabirgðaniðurstaða reksturs heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2015 og útlit er fyrir jákvæða niðurstöðu.
-
Sagt frá verkefni sem HNV og HNE eru að vinna saman um, Hvað verður um útrunnin matvæli?. Farið var í matvöruverslanir og til birgja og starfmenn spurðir um afdrif vöru. Greinagerð verður sett á heimasíðu og sent matvælahópi MAST og heilbrigðiseftirlitana.
-
Kynnt var vinna við stöðuskýrslu um ástand fráveitumála á Norðurlandi vestra. Sveitarfélögin eru hvött til að ljúka við að fylla út skýrsluna.
-
Skýrt var frá kvörtunum og niðurstöðu rannsókna á sveppamengun í leikskólanum Ársölun yngra stigs. Einnig var skýrt frá svipuðum kvörtunum frá grunnskólum á svæðinu.
-
Brennsluofnar við sláturhús. Farið yfir stöðu málsins. Nefndin bendir á að nauðsynlegt er að finna förgunarleið fyrir dýrahræ á svæðinu því núverandi ástand er ekki viðunandi.
-
Starfsleyfi
a) Mál nr. 1192 reglug 941/2002
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir v/Hólavegur 31, Fjallabyggð
Kt: 110243-6189
Samþykkt til: 17.3. 2028
b) Mál nr. 1193 reglug. 941/2002
Þorvaldur Steingrímsson v/Gistiheimilið Litla Borg Sauðárkróki.
Kt: 680403-2360
Samþykkt til: 17.3. 2028
c) Mál nr. 1194, reglug. 941/2002
Finnur Sigurðsson v/Finnur Sigurðsson Ferðaþjónusta Bakkaflöt II, Skagafirði
Kt: 250288-3609
Samþykkt til: 17.3. 2028
d) Mál nr. 1195 reglug. 941/2002
Magnús Ásgeir Elíasson v/Hestaleigan Bændagisting Stóru Ásgeirsá Húnaþingi vestra
Kt: 180384-2199
Samþykkt til: 17.3. 2028
e) Mál. nr. 1196 reglug. 941/2002
Ásta Búadóttir v/Ástusápur, Smáragrund 13 Sauðárkróki
Kt: 291155-5299
Samþykkt til: 17.3. 2028
f) Mál nr. 1007 reglug. 785/1999
Stefán Einarsson v/Efnistöku á Siglunesi
Kt: 420402-3250
Samþykkt að framlengja starfsleyfi fyrir efnistöku til 11. apríl 2016
-
Önnur mál.
-
Rætt um starfsmannamál.
-
Sigríður Hjaltadóttir heilbrigðisfulltrúi gerði grein fyrir svörum Olíufélagana vegna fyrirspurna um mengunarvarnir við bensínstöðvar og flutning eldsneytis á Norðurlandi vestra. Framkvæmdastjóra falið að ganga eftir úrbótum.
Fleira ekki gert, fundi slitið
Sigríður Magnúsdóttir Guðný Helga Kristjánsdóttir
Haraldur Þór Jóhannsson Anna Margrét Sigurðardóttir
Ína Ársælsdóttir Kristinn Kristjánsson
Dostları ilə paylaş: |